Íslenski ferðaklasinn
Ég hef unnið með Íslenska ferðaklasanum að fjölbreyttum verkefnum tengdum nýsköpun, þróun ferðaþjónustu, ráðstefnum, viðburðum og miðlun síðustu ár. Verkefnin hafa spannað allt frá stefnumótandi vinnu og hugmyndavinnu yfir í framkvæmd, framsetningu og þróun kynningarefnis og upplifunar fyrir ólíka hagaðila innan ferðaþjónustunnar.
Ég hef komið að skipulagningu og framkvæmd alþjóðlegra ráðstefna og samstarfsverkefna, þar á meðal TCI Network ráðstefnunni og Nordic Regenerative Tourism (NorReg), auk fjölmargra vinnustofa, funda og þróunarverkefna fyrir klasann og samstarfsaðila hans.
Sem hluti af samstarfinu hef ég einnig unnið að þróun og uppsetningu á heimasíðu Íslenska ferðaklasans ásamt fjölbreyttu efni og framsetningu fyrir verkefni, viðburði og kynningar.
Samstarfið hefur einkennst af skapandi nálgun, hröðum vinnubrögðum og sterkri tengingu milli stefnumótunar, upplifunar og framkvæmdar.