Ferðaþjónustukjarnar á höfuðborgarsvæðinu
Undanfarin misseri hef ég unnið í samstarfi við Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins að þróun verkefnis um ferðaþjónustukjarna á höfuðborgarsvæðinu. Markmið verkefnisins er að greina, kortleggja og þróa svæði sem hafa sérstakt aðdráttarafl fyrir ferðamenn og geta nýst betur í upplifunarhönnun, vöruþróun og markaðssetningu svæðisins.
Verkefnið byggir á þeirri hugmynd að höfuðborgarsvæðið samanstandi af ólíkum kjörnum þar sem saga, menning, náttúra, hafnarsvæði, útivist og mannlíf skapa saman sterka upplifun fyrir gesti. Með verkefninu er unnið að því að styrkja upplifun gesta, stuðla að betri dreifingu ferðamanna og styðja við sjálfbæra þróun áfangastaðarins.
Til grundvallar lá greining á seglum höfuðborgarsvæðisins frá árinu 2023. Í framhaldinu voru haldnar vinnustofur með hagaðilum þar sem farið var í greiningu á núverandi og mögulegum ferðaþjónustukjörnum, sérstöðu þeirra, markhópum og upplifunargildi.
Sem hluti af verkefninu hef ég komið að skipulagningu og framkvæmd hagaðilasamtala og vinnustofa fyrir svæði á borð við Álafosskvos, Hafnarfjörð, Gömlu höfnina og Grandann, þar sem áhersla hefur verið lögð á upplifun, flæði, aðdráttarafl og framtíðarsýn svæðanna sem áfangastaða fyrir gesti.
Verkefnið sameinar stefnumótun, upplifunarhönnun, þátttöku hagaðila og skapandi nálgun við þróun áfangastaða og hefur skapað mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.