ÍMARK
Ég hef unnið náið með ÍMARK að fjölbreyttum verkefnum tengdum markaðsmálum, viðburðum, kynningum, upplifun og þróun faglegs efnis fyrir íslenskan markað. Verkefnin hafa spannað allt frá stefnumótun og hugmyndavinnu yfir í framkvæmd, framsetningu og utanumhald stórra viðburða.
Ég hef borið ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd ÍMARK dagsins og Lúðursins sl. 2 ár. Ég hef unnið með dagskrárgerð, viðburðaframleiðslu, kynningarefni, samfélagsmiðlum, miðlun, samstarfsaðilum og upplifun gesta. Einnig hef ég þróað efni fyrir morgunfundi, málstofur og sérviðburði ÍMARK um þróun markaðsmála, birtinga, vörumerkja og nýrrar tækni.
Sem hluti af samstarfinu hef ég unnið að endurnýjun og þróun á heimasíðu ÍMARK, framsetningu efnis, félagsaðild, kynningum og stafrænu markaðsefni fyrir bæði viðburði og daglega starfsemi samtakanna.
Ég hef jafnframt komið að verkefnum tengdum Lúðrinum, Árunni, Auglýsingastofu ársins og Vörumerki ársins, þar á meðal utanumhaldi, framsetningu, kynningum og upplifun í kringum verðlaun og séð um dómnefndarstörf.
Samstarfið hefur einkennst af hraða, skapandi lausnum, sterkri framkvæmd og getu til að tengja saman hugmyndir, upplifun, markaðssetningu og faglega framsetningu.