Placekeeping: Hvað má ekki glatast?

Þegar staðir vaxa hratt eða sækja sömu lausnirnar hver til annars er hætt við að þeir verði einsleitir - fallegir kannski, en sérkenni tapast.

Placekeeping færir upphafspunktinn. Í stað þess að spyrja strax hvað eigi að byggja eða bæta við er fyrst hlustað eftir því sem þegar gefur staðnum merkingu: minningum, sögum, venjum, efni, náttúru og þekkingu fólksins sem þekkir hann.

Þetta er ekki fortíðarþrá. Þetta er hönnun sem vinnur með minni staðarins í stað þess að afmá það.

Fyrir lítil íslensk samfélög gæti fyrsta spurningin því verið:

Hvað er hér nú þegar sem við megum alls ekki missa/glata?

Heimild: Design Workshop, Six Design Trends for 2026.

Next
Next

Velkomin í MH Vaktina